Innréttingar frá IMPULS eru vel hannaðar, vandaðar og fjölbreytilegar í öllum stíltegundum. Mikil áhersla er lögð á hagkvæmmni í framleiðslunni til að halda verði lágu. IMPULS innréttingar eru því samkeppnisfærar við ódýrari innréttingar en með forskot hvað varðar gæði. Allar einingar koma að fullu samsettar og þannig koma til dæmis skúffueiningar samsettar með ísettum brautum, skúffum í og framhliðum á og búið er að bora fyrir höldum. Það tryggir gæði og lækkar uppsetningarkostnað mjög mikið miðað við innréttingar sem eru afhentar ósamsettar í flötum pakkningum ásamt því að stytta uppsetningartímann um marga daga.
Allar IMPULS innréttingar eru með 5 ára ábyrgð.
Við svörum öllum fyrirspurnum